Valmynd.
Verkefni ráðuneytisins eru afar fjölþætt. Nefna má m.a. umferðarmál, öryggis- og björgunarmál, málefni dómstóla, sveitarstjórnarmál, vegamál, málefni lögreglu og sýslumanna, sifjamál og veitingu ríkisborgararéttar.
Á vegum innanríkisráðuneytis eru í gangi á hverjum tíma ýmis sérverkefni.
Fjöldi fastanefnda er starfandi á vegum innanríkisráðuneytisins en einnig eru hverju sinni fjöldi tímabundinna nefnda að störfum.
Innanríkisráðuneytið er í nánu samstarfi við ýmsar alþjóðlegar stofnanir. Þar má nefna stofnanir Norðurlandasamstarfsins, Evrópuráðið, stofnanir, sem tengjast EES-samstarfinu, OECD og fleira.