Mannanafnanefnd

Um mannanafnanefnd gilda ákvæði 21. - 23. gr. laga um mannanöfn nr. 45/1996

Mannanafnanefnd er skipuð þremur mönnum og jafnmörgum til vara.
Innanríkisráðherra skipar nefndina til fjögurra ára í senn að fengnum tillögum heimspekideildar Háskóla Íslands, lagadeildar Háskóla Íslands og Íslenskrar málnefndar.

Eftirtalin eru skipuð í nefndina frá 1. janúar 2010 til 31. desember 2013:

  • Ágústa Þorbergsdóttir, deildarstjóri málræktarsviðs hjá Stofnun Árna Magnússonar, formaður
  • Katrín Axelsdóttir, málfræðingur og aðjunkt á Hugvísindasviði Háskóla Íslands,
  • Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands.

Varamenn:

  • Magnús Snædal Rósbergsson, prófessor,
  • Jóhannes Bjarni Sigtryggsson, málfræðingur og sérfræðingur á Stofnun Árna Magnússonar,
  • Kristín Benediktsdóttir, héraðsdómslögmaður.

Skriflegum erindum til mannanafnanefndar skal beint til:
Mannanafnanefnd
b.t. innanríkisráðuneytisins
Sölvhólsgötu 7
150 Reykjavík

Netfang: mannanafnanefnd@irr.is

Helstu verkefni mannanafnanefndar eru þessi:

  1. Að semja skrá um eiginnöfn og millinöfn sem teljast heimil skv. 5. og 6. gr. laga um mannanöfn og er hún nefnd mannanafnaskrá. Unnt er að fara inn á slóð skrárinnar hér að neðan. Skráin er uppfærð eftir hvern fund mannanafnanefndar.
  2. Að vera prestum, forstöðumönnum skráðra trúfélaga, Þjóðskrá Íslands og forsjármönnum barna til ráðuneytis um nafngjafir og skera úr álita- og ágreiningsefnum um nöfn samkvæmt lögum um mannanöfn.
  3. Að skera úr öðrum álita- eða ágreiningsmálum sem upp kunna að koma um nafngjafir, nafnritun og fleira þess háttar.

Úrskurðum mannanafnanefndar er ekki unnt að skjóta til æðra stjórnvalds.

Ath. gjald fyrir beiðni til mannanafnanefndar um samþykki fyrir nýju nafni á mannanafnaskrá er 3000 kr. og greiðist við innlagningu beiðnarinnar.

Hér er að finna skrá yfir mannanöfn.

Nánari upplýsingar um ýmislegt sem snýr að mannanafnalögum má finna hér.




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica