Málaflokkar

Horft til framtíðar Dagur upplýsingatækninnar 20. maí

Dagur upplýsingatækninnar, UT-dagurinn, verður haldinn fimmtudaginn 20. maí næstkomandi. Að þessu sinni verða haldnar tvær ráðstefnur þennan dag og í dagskrárlok verða í fyrsta skipti afhent upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélagsins.

Lesa meira
 

Fyrirlestrar og myndir frá UT-ráðstefnunni 2009

Í tilefni af degi upplýsingatækninnar 2009, UT-deginum, var haldin ráðstefna 19. maí undir yfirskriftinni: Upplýsingatækni til endurreisnar, Bætt þjónusta - lægri kostnaður. Lesa meira
 

Stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið

Ríkisstjórnin gaf í dag út nýja stefnu um upplýsingasamfélagið og var hún kynnt í fyrsta sinn á UT-ráðstefnunni sem haldin var í tilefni dags upplýsingatækninnar.

Lesa meira
 

Dagskrá ráðstefnu UT-dagsins 2008

Forsætisráðuneytið, í samvinnu við Skýrslutæknifélag Íslands, stendur fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Netríkið Ísland í tilefni af degi upplýsingatækninnar. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Nordica, miðvikudaginn 7. maí kl. 13:00-16:15. Þar verður kynnt ný stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið og nokkur lykilverkefni sem unnið verður að á framkvæmdatíma stefnunnar. Skráning og frekari upplýsingar á (www.sky.is

).

Lesa meira
 

Stefna um frjálsan og opinn hugbúnað

Verkefnisstjórn um rafræna stjórnsýslu í forsætisráðuneyti vann að mótun stefnu um frjálsan og opinn hugbúnað. Stuðst var meðal annars við skýrslu um opinn hugbúnað sem gerð var fyrir forsætisráðuneytið 2005, stefnur annarra þjóða og margvíslegt efni frá Evrópusambandinu. Haft var samráð við hagsmunaaðila og var stefnan síðan samþykkt í verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið. Ríkisstjórnin samþykkti stefnuna 11. mars 2008.

Lesa meira
 

Nýmiðlunarverðlaun Sameinuðu þjóðanna 2007

Á tveggja ára fresti standa Sameinuðu þjóðirnar fyrir vef- og margmiðlunarkeppninni World Summit Award. Íslenskt fyrirtæki hefur náð góðum árangri í þessari keppni því á árinu 2005 var fyrirtækið, 3-plus, sem framleiðir leiktækið DVD-Kids fyrir börn einn af 40 vinningshöfunum í keppninni Lesa meira
 

Úttekt á framkvæmd stefnunnar um upplýsingasamfélagið árin 2004-2007

Hafin er úttekt sem ætlað er að varpa ljósi á hvernig til hefur tekist með framkvæmd stefnu upplýsingasamfélagsins Auðlindir í allra þágu, á árunum 2004-2007. Lesa meira
 

Úttekt á opinberum vefjum

Forsætisráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga standa fyrir úttekt á opinberum vefjum á Íslandi. Úttektin hefur farið fram nú í sumar og er niðurstaðna að vænta á haustmánuðum 2007 og verða þær rækilega kynntar. Lesa meira
 

Aðgengi allra að upplýsingum á vef - Leiðbeiningar um gerð aðgengilegra PDF skjala

Teknar hafa verið saman leiðbeiningar um hvernig sníða skal fyrirsagnir, myndir, gröf og fleira í Microsoft Word skjali og útbúa það á PDF sniði þannig að upplýsingarnar verði aðgengilegar blindum og sjónskertum. Lesa meira
 



Stefnan

Netríkið Ísland



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica