Samgönguáætlun
Innanríkisráðherra hefur lagt fyrir Alþingi tólf ára samgönguáætlun fyrir árin 2011 til 2022 og fjögurra ára samgönguáætlun 2011 til 2014. Tólf ára samgönguáætlun hefur að geyma stefnumótun en fjögurra ára áætlunin er verkefnaáætlun í sbr. 2. og 3. gr. laga nr. 33/2008.
Samgönguáætlun 2003-2014, fyrsta áætlunin sem unnin var samkvæmt lögum um gerð samgönguáætlunar frá 2002, var samþykkt á vorþingi 2003. Fyrsta endurskoðun hennar, tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun 2007-2018, var lögð fram á vorþingi 2007 en var ekki afgreidd. Samgönguáætlun 2003-2014 er því enn í gildi og gildandi fjögurra ára áætlun 2009-2012, sem samþykkt var á vorþingi 2010, fellur innan hennar. Með framlagningu tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun 2011-2022 fer fram önnur endurskoðun tólf ára samgönguáætlunar.
Hér er að finna lög um samgönguáætlun og fyrri samgönguáætlanir sem samþykktar hafa verið en þær ná til tólf ára og fjögurra ára og eru endurskoðaðar reglulega. Bent er á helstu atriði áætlunarinnar, greinargerð og annað sem snertir hana. Þá eru birtar hér ýmsar skýrslur sem unnar hafa verið vegna samgönguáætlunar og aðrar tengdar skýrslur. Einnig eru tenglar á vefsíður stofnana er tengjast verkefninu og heyra undir innanríkisráðuneytið og á samgönguáætlanir nokkurra annarra þjóða.
