Dagur upplýsingatækninnar, UT-dagurinn, verður haldinn fimmtudaginn 20. maí næstkomandi. Að þessu sinni verða haldnar tvær ráðstefnur þennan dag og í dagskrárlok verða í fyrsta skipti afhent upplýsingatækniverðlaun Skýrslutæknifélagsins.
Lesa meiraRíkisstjórnin gaf í dag út nýja stefnu um upplýsingasamfélagið og var hún kynnt í fyrsta sinn á UT-ráðstefnunni sem haldin var í tilefni dags upplýsingatækninnar.
Lesa meiraForsætisráðuneytið, í samvinnu við Skýrslutæknifélag Íslands, stendur fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Netríkið Ísland í tilefni af degi upplýsingatækninnar. Ráðstefnan verður haldin á Hilton Nordica, miðvikudaginn 7. maí kl. 13:00-16:15. Þar verður kynnt ný stefna ríkisstjórnarinnar um upplýsingasamfélagið og nokkur lykilverkefni sem unnið verður að á framkvæmdatíma stefnunnar. Skráning og frekari upplýsingar á (www.sky.is
).
Lesa meiraInnanríkisráðuneytið óskar umsagna við tillögu þess efnis að ný viðmið taki gildi til að tryggja aðgengi að opinberum vefjum, m.a. fyrir blinda, sjónskerta og aðra sem þurfa að nota hjálpartæki við lestur efnis og notkun vefja. Í tillögunni, sem fylgir nýjum viðmiðum alþjóðlegu staðlasamtakanna W3C og kallast WCAG 2.0, er lagt til að innleiðingu viðmiðanna hér á landi ljúki fyrir árslok 2016.
Lesa meira