Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga - lagagrundvöllur

Á grundvelli ákvæða 74. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998 ber ráðherra að skipa þriggja manna eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Einn fulltrúi í nefndina skal skipaður samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga og tveir án tilnefningar og skal annar þeirra vera löggiltur endurskoðandi. Ráðherra skal einnig skipa þrjá varamenn með sama hætti. Ennfremur skipar ráðherra formann nefndarinnar.

Samkvæmt framangreindri 74. gr sveitarstjórnarlaganna setti félagsmálaráðherra reglugerð nr. 374/2001 um eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga. Reglugerðin var sett í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Reglugerðin fjallar um mat á fjárhagsstöðu sveitarfélaga, fjármálalegt eftirlit eftirlitsnefndar og málsmeðferð. Í reglugerðinni er að finna þær lykiltölur sem nefndinni er ætlað að reikna út og bera saman við viðmið sem árlega verða sett í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga.






Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica