Til umsagnar eru nú hjá Innanríkisráðuneytinu drög að reglugerð um breytingu á reglum um björgunar- og öryggisbúnað íslenskra skipa, nr. 189/1994, með síðari breytingum. Umsagnafrestur um drögin er til 1. maí 2012 og skal senda umsagnir á netfangið postur@irr.is.
Lesa meira
Innanríkisráðherra hefur ásamt fulltrúum Vestmannaeyjabæjar, Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar farið yfir stöðuna varðandi siglingar í Landeyjahöfn. Hefur verið fjallað um smíði nýrrar ferju, fyrirkomulag siglinga þar til ný ferja verður komin í gagnið, líklega þróun sandburðar við Landeyjahöfn og rannsóknir sem framundan eru. Við fjármögnun verður litið til verkefnisins í heild, þ.e. smíði nýrrar ferju og aðgerða til aðlögunar Landeyjahafnar að breyttum náttúrulegum aðstæðum.
Lesa meira
Siglingaverndaráætlun, langtímaáætlun um öryggi sjófarenda og rannsóknir vegna hugsanlegra takmarkana á siglingaleiðum við landið er meðal umfangsmikilla verkefna á sviði siglingamála.
Leiðarljós innanríkisráðuneytis er að siglingar séu öruggar. Ef litið er til sjósóknar við Ísland þó ekki sé nema síðustu 50 ár er augljóst að slysum á þeim tíma hefur fækkað til muna.