Gildandi loftferðasamningar
Loftferðasamningar í gildi:
Listi yfir loftferðasamninga sem Ísland hefur gert og eru í gildi.
- Bandaríkin N-Ameríka, bókun um breytingu 2002, 2006 og 2007
- Bretland
- Danmörk (+)
- Finnland
- Holland
- Hong Kong
- Kína
- Króatía (óbirtur)
- Lúxemborg
- Noregur (+)
- Makaó
- Mongólía (óbirtur)
- Rússland, breyting á viðauka 2007
- Spánn
- Svíþjóð (+)
- Tæland
- Þýskaland
- Samkomulag við Kanada um flugsamgöngur
- Singapore (1)
(1) Undirritaður samningur, en ekki fullgiltur og birtur.
(+) Nýir samningar hafa verið áritaðir við sömu ríki.
Aðrir samningar er varða flugréttindi og eru í gildi:
- Alþjóðasamningur um almenningsflug (Chicago-samningurinn) (Convention on International Civil Aviation). Auglýsing um staðfestingu flugsamninga nr. 45/1947).
- Alþjóðasamningur um viðkomuréttindi loftfara (International Air Service Transit Agreement). Samningar Íslands við erlend ríki nr. 51.
- Alþjóðasamningur um viðskiptaréttindi óreglubundinna flugþjónustu í Evrópu (Multilateral agreement for non-scheduled air services in Europe). Samningar Íslands við erlend ríki nr. 108.
- Stofnsamningur EFTA og Vaduz samningurinn (EFTA Convention and Vaduz Convention 2001).
Áritaðir loftferðasamningar:
Listi yfir áritaða loftferðasamninga sem Ísland hefur gert en hafa ekki tekið gildi. Stjörnumerking (*) samnings merkir að viðkomandi ríki hefur samþykkt að beita ákvæðum samningsins frá áritun. Áritaðir samningar hafa ekki verið birtir í stjórnartíðindum.
- Barein*
- Danmörk*
- Kanada*
- Katar*
- Indland*
- Indónesía*
- Líbanon*
- Malasía*
- Noregur*
- Óman*
- Sameinuðu arabísku furstadæmin*
- Svíþjóð*
- S-Kórea
- Egyptaland*
- Mexíkó
- Víetnam
- Kúveit
- Aserbaídsjan
- Túrkmenistan
- Sýrland
- Dóminíska lýðveldið
- Tyrkland
Samningur um samevrópskt loftrými (European Common Aviation Area Agreement, ECAA)* hefur verið undirritaður fyrir Íslands hönd en bíður fullgildingar. Varðandi gildi réttinda, sjá bókanir einstakra aðildarríkja um bráðabirgða beitingu samningsins.
Á döfinni
Á síðustu árum hefur fjölgað mjög loftferðasamningum Íslands við erlend ríki. Unnið er að þýðingum og öðrum undirbúningi að undirritun þeirra samninga sem þegar hafa verið áritaðir.
Árið 2008 var unnið að gerð loftferðasamninga við Egyptaland, Singapore og Mexíkó, auk aðildar Íslands að loftferðasamningi Evrópubandalagsins, aðildarríkja Evrópubandalagsins og Bandaríkja N-Ameríku.
Í byrjun árs 2009 var undirritaður samningur við Singapore. Ennfremur er stefnt að undirritun loftferðasamninga við Svíþjóð og Noreg á árinu.
Í maí 2009 var samningafundur í Reykjavík með Tyrklandi. Þá var fundur í júní um aðild Íslands að loftferðasamningi Evrópubandalagsins, aðildarríkja Evrópubandalagsins og Bandaríkjanna, auk viðræðna um aðild Íslands að loftferðasamningi Evrópubandalagsins, aðildarríkja Evrópubandalagsins og Marakkó fyrir sumarbyrjun..
Í apríl 2009 var óskað eftir aðild Íslands að öllum heildstæðum loftferðasamningum Evrópubandalagsins og aðildarríkja þeirra við þriðju ríki. Meðal slíkra ríkja eru: Marakkó, Kanada, Úkraína, Líbanon, Nýja Sjáland, Ísrael, Ástralía, Alsír, Túnis, Jórdanía og Síle.
Unnið er að breytingum á stofnsamningi EFTA, EES-samningnum og tvíhliða samningi Sviss og Evrópubandalagsins til að tryggja flugréttindi frá aðildarríkjum Evrópubandalagsins/EFTA til Sviss og öfugt.
Síðast uppfært 13.1.2010.
