Bótamál

r8

Upplýsingar

Drög að lagabreytingu um greiðslu á bótum til þolenda afbrota til umsagnar - 23.2.2012

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota, nr. 69 10. mars 1995, með síðari breytingum eru nú til umsagnar hjá innanríkisráðuneytinu. Með því er meðal annars leitast við að bæta stöðu þolenda kynferðisbrota með því að hækka hámarksgreiðslu miskabóta á grundvelli laganna. Frestur til að senda umsagnir er til föstudagsins 2. mars og skulu þær berast á netfangið postur@irr.is.

Lesa meira
 

Ný lög um breytingu á lögum um greiðslu ríkissjóðs á bótum til þolenda afbrota - 20.9.2011

Með nýjum lögum sem Alþingi hefur samþykkt er gert heimilt að víkja frá því skilyrði að umsókn um bætur vegna tjóns sem leitt verður af broti sem framið var fyrir 1. júlí 1996 skuli hafa borist bótanefnd fyrir 1. júní 1997, ef veigamikil rök mæli með því.

Lesa meira
 



Nefndir

Bótanefnd

Í bótanefnd eiga sæti þrír menn sem innanríkisráðherra skipar til fjögurra ára í senn. Ráðherra skipar einn þeirra formann nefndarinnar og þrjá menn til vara.

Nefndarmenn og varamenn þeirra skulu fullnægja skilyrðum laga til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara. Um hæfi nefndarmanna til að fara með mál skal fara eftir reglum laga um sérstakt hæfi dómara.

Nefndarmenn eru:

  • Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður í Kópavogi
  • Ásdís Ármannsdóttir, sýslumaður á Siglufirði
  • Aðalsteinn Þorsteinsson, lögfræðingur

Varamenn eru lögfræðingarnir Björn Hrafnkelsson, Friðrikka Harpa Ævarsdóttir og Svavar Pálsson.

Öll umsýsla varðandi mál hjá nefndinni og afgreiðsla þeirra er hjá embætti sýslumannsins á Siglufirði. Ber að senda allar umsóknir þangað á Gránugötu 6, 580 Siglufjörður.

Sími er 460 3900 og faxnúmer 460 3901. Opið frá kl. 9.00-15.00 og símaþjónusta í skiptiborði er frá kl. 8.00-15.30.

Netfang: botanefnd@syslumenn.is

Veffang: www.botanefnd.is

Almennar upplýsingar um bótagreiðslur úr ríkissjóði til þolenda afbrota




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica