Samkvæmt 2. gr. laga um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá nr. 19/1988 skal stofnfé sjóðs eða stofnunar árið 2007 vera 692.000,- kr. hið minnsta.
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur í dag gefið út reglugerðir um flutning ýmissa verkefna úr dóms- og kirkjumálaráðuneytinu í Reykjavík. Verkefnunum verður framvegis sinnt hjá sýslumannsembættum, víða á landinu.