„Víst er þetta stórt skref, en í rauninni samt svo sjálfsagt og eðlilegt framhald á þeirri þróun, sem þegar hefur orðið í að bæta réttindi samkynhneigðra þegar kemur að réttinum til fjölskyldulífs,“ sagði Ragna Árnadóttir dómsmála- og mannréttindaráðherra m.a. í ávarpi sínu í Fríkirkjunni í gærkvöld í tilefni af gildistöku nýrra hjúskaparlaga.
Lesa meiraNefnd sem falið var að endurskoða ákvæði barnalaga um framfærslu barna, með það fyrir augum að kanna hvort núgildandi fyrirkomulag þjónaði hagsmunum barna og foreldra með sanngjörnum hætti, hefur nú skilað ráðherra tillögum sínum að umfangsmiklum breytingum á lögunum með frumvarpi og greinargerð.
Lesa meira