Upplýsingar

Erfið staða hjá sóknum vegna fjárhagsvanda og skerðingar sóknargjalda

Nefnd sem innanríkisráðherra skipaði síðastliðið sumar til að meta áhrif niðurskurðar fjárveitinga á starfsemi þjóðkirkjunnar og afleiðingar þess að haldið yrði áfram á þeirri braut hefur nú skilað ráðherra skýrslu sinni. Fram kemur í skýrslunni að eftir athuganir á ársreikningum sókna og af lýsingum fulltrúum sóknarnefnda sé óhætt að draga þá ályktun að grunnstoðir í starfsemi safnaða þjóðkirkjunnar séu að hruni komnar vegna fjárhagsvanda.

Lesa meira
 

Opinn fundur um trúfrelsi á Íslandi

Innanríkisráðuneytið stendur fyrir opnum morgunverðarfundi um trúfrelsi á Íslandi miðvikudaginn 7. mars nk. kl. 8.30–10.00 á efri hæðinni í Iðnó. Þetta er þriðji fundurinn í fundaröð ráðuneytisins um mannréttindamál í tengslum við mótun landsáætlunar í mannréttindum. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis.

Lesa meira
 

Frumvarp um breytingu á lögum um skráð trúfélög á dagskrá Alþingis á morgun

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra mun á þingfundi á morgun mæla fyrir lagafrumvarpi um breytingu á lögum um skráð trúfélög, nr. 108/1999 með síðari breytingum. Drög að frumvarpinu voru birt á vef ráðuneytisins í nóvember og gefinn tveggja vikna frestur til umsagna. Bárust nokkrar umsagnir á þeim tíma.

Lesa meira
 

Innanríkisráðherra kynnti sér kirkjumál og prentminjar á Hólum

Fulltrúar þjóðkirkjunnar og Háskólans á Hólum kynntu ýmsa þætti kirkju-, menningar- og skólastarfs á Hólum í Hjaltadal fyrir innanríkisráðherra í heimsókn hans þangað um síðustu helgi. Var einnig rætt um ýmsar hugmyndir um framtíðarverkefni á Hólum.

Lesa meira
 

Fagnað fimm ára afmæli samstarfsráðs trúfélaga

Haldið var upp á fimm ára afmæli samráðsvettvangs trúfélaga í Ráðhúsi Reykjavíkur síðastliðinn fimmtudag með dagskrá þar sem flutt voru erindi og ávörp, sungin trúarljóð og kveðnar rímur. Alls eiga 15 trúfélög og hópar aðild að samstarfsráðinu. Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra var meðal þeirra sem fluttu ávörp en auk hans talaði forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson,

Lesa meira
 

Innanríkisráðherra ræddi fjármál og stöðu kirkjunnar við upphaf Kirkjuþings

Kirkjuþing var sett í morgun í Reykjavík og liggja alls 36 mál fyrir þinginu. Við upphaf þingsins fluttu ræður þau Karl Sigurbjörnsson biskup, Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Sólveig Anna Bóasdóttir, forseti guðfræði- og trúarbragðadeildar HÍ.

Lesa meira
 

Drög að lagafrumvarpi um kirkjugarða og fleira til umsagnar

Drög að lagafrumvarpi til breytinga á lögum um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu nr. 36/1993 með síðari breytingum eru nú til umsagnar hjá innanríkisráðuneytinu. Með frumvarpinu er styrkt lagaumgjörð er snertir greftrun, líkbrennslu og fleira. Unnt er að senda umsagnir á netfangið postur@irr.is til 14. nóvember nk.

Lesa meira
 

Drög að frumvarpi til breytinga á lögum um skráð trúfélög til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu drög að lagafrumvarpi um breytingu á lögum um skráð trúfélög, nr. 108/1999. Markmið breytinganna er að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga og skráðra trúfélaga og að tryggja jafnrétti foreldra barns við ákvörðun um hvaða skráða trúfélagi eða lífsskoðunarfélagi barn skuli tilheyra. Unnt er að senda athugasemdir við frumvarpsdrögin á netfangið postur@irr.is til 14. nóvember.

Lesa meira
 

Nefnd falið að meta áhrif niðurskurðar fjárveitinga á starfsemi þjóðkirkjunnar




Nefndin lauk störfum með útgáfu skýrslu 4. maí 2012.




Innanríkisráðherra hefur skipað nefnd til að meta hvaða áhrif niðurskurður fjárveitinga hafi haft á starfsemi þjóðkirkjunnar og hverjar yrðu afleiðingarnar ef haldið yrði áfram á þeirri braut. Nefndin kom saman til síns fyrsta fundar 3. ágúst og mun skila áliti til ráðherra fyrir 1. maí 2012.

Lesa meira
 

Efnið og andinn

Ávarp við upphaf kirkjuþings, Grensáskirkja, 25. október, 2008.

Lesa meira

 

Fullnaðarvald þjóðkirkju

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, flutti ávarp við setningu Kirkjuþings í Grensáskirkju í morgun.

Lesa meira

 

Íslenska ríkið og Þjóðkirkjan semja um prestssetur

Í dag undirrituðu biskup Íslands Karl Sigurbjörnsson, dóms- og kirkjumálaráðherra Björn Bjarnason og fjármálaráðherra Árni M. Mathiesen samkomulag milli íslenska ríkisins og Þjóðkirkjunnar um prestssetur. Lesa meira
 

Breyting á lögum um helgidagafrið

Ráðuneytið vekur athygli á nýjum lögum um breyting á lögum um helgidagafrið, nr. 32/1997, með lagabreytingunni er ákvæðum er varða opnunartíma verslana á Hvítasunnudag breytt frá því sem áður var. Lesa meira
 

Tillaga til þingsályktunar um nýjan grundvöll að ákvörðun kirkjugarðsgjalds og skiptingu þess.

Björn Bjarnason kirkjumálaráðherra hefur lagt fyrir kirkjuþing tillögu til þingsályktunar um nýjan grundvöll að ákvörðun kirkjugarðsgjalds og skiptingu þess. Lesa meira
 

Reglugerð um dreifingu ösku utan kirkjugarðs

Dóms- kirkjumálaráðuneytið hefur gefið út reglugerð um dreifingu ösku utan kirkjugarðs. Lesa meira
 

Ávarp dóms- og kirkjumálaráðherra á Kirkjuþingi 2002

Ávarp Sólveigar Pétursdóttur, dóms- og kirkjumálaráðherra, við setningu Kirkjuþings 13. október 2002. Lesa meira
 

Biskup Íslands, kirkjumálaráðherra og fjármálaráðherra undirrita samning um fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju

Föstudaginn 4. september 1998 var undirritaður samningur á milli íslenska ríkisins og þjóðkirkjunnar um fjárhagsleg samskipti ríkis og kirkju. Samningurinn ásamt fylgiskjölum er birtur á heimasíðu ráðuneytisins Lesa meira
 



Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica