Náðunarnefnd

Í lögum nr. 49/2005 um fangelsi og fangavist, kafla XI, 78. gr. segir um náðunarnefnd:

Innanríkisráðherra skipar þriggja manna nefnd, náðunarnefnd, svo og þrjá varamenn, til þriggja ára í senn. Formaður nefndarinnar og varaformaður skulu uppfylla skilyrði laga til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara.

Nefndin skal láta ráðherra í té rökstudda tillögu um afgreiðslu á erindum sem til hans er skotið vegna ákvörðunar fangelsismálastofnunar um samfélagsþjónustu og reynslulausn, svo og um afgreiðslu náðunarbeiðna.


Þessir skipa nefndina til þriggja ára frá 1. september 2010 að telja:
Aðalmenn:

  • Ragnheiður Bragadóttur, prófessor, og er hún jafnframt formaður.
  • Sigurður Guðmundsson, forseti heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands
  • Fanney Óskarsdóttir, lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu.

Varamenn:

  • Gísli G. Hall, hdl og er hann jafnframt varaformaður.
  • Arna Guðmundsdóttir, læknir.
  • Hansína B. Einarsdóttir, afbrotafræðingur.

Ritari nefndarinnar er Skúli Þór Gunnsteinsson, lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu.





Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica