Um ráðuneytið

Um innanríkisráðuneytið

Innanríkisráðuneytið tók til starfa 1. janúar 2011 með samruna dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins annars vegar og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins hins vegar, í samræmi við lög nr. 121/2010 um breytingu á Stjórnarráði Íslands sem samþykkt voru á Alþingi 9. september 2010.

Verkefni innanríkisráðuneytisins skiptast á sex skrifstofur; skrifstofu almannaöryggis, skrifstofu fjármála og rekstrar, skrifstofu innviða, skrifstofu mannréttinda og sveitarfélaga, skrifstofu réttarfars og stjórnsýslu og skrifstofu stefnumótunar og þróunar. Sjá einnig skipurit ráðuneytisins.

Verkefni ráðuneytisins eru skilgreind í forsetaúrskurði nr. 125/2011 um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands:

A. Dómstóla, réttarfar, stjórnskipunarrétt og skaðabótarétt, þar á meðal:

  • Dómaskipan, dómstóla aðra en Félagsdóm, réttarfar, gjafsókn, réttaraðstoð vegna nauðasamninga, lögmenn, dómtúlka og skjalaþýðendur.
  • Eignarrétt og afnotarétt fasteigna, sem og framkvæmd eignarnáms er eigi ber undir annað ráðuneyti.
  • Skaðabætur utan samninga, bætur til þolenda afbrota, sanngirnisbætur og niður­jöfnunarmenn sjótjóns.
  • Birtingu laga og stjórnvaldserinda, útgáfu Stjórnartíðinda, lagasafns og Lög­birtingablaðs.

B. Réttarvörslukerfið og almannaöryggi, þar á meðal:

  • Meðferð ákæruvalds, er það ber undir ráðherra að lögum, og eftirlit með fram­kvæmd ákæruvalds annars.
  • Fullnustu refsingar, fangelsi og fangavist, reynslulausn refsifanga, samfélags­þjónustu, náðun, sakaruppgjöf, uppreist æru, framsal sakamanna og gagnkvæma réttaraðstoð.
  • Lögreglu og löggæslu, þ.m.t. gæslu landamæra, landhelgi og fiskimiða, almanna­varnir, alþjóðlegt löggæslusamstarf, þ.m.t. á grundvelli Schengen samn­ingsins.
  • Skipströnd og vogrek, sjómælingar og sjókortagerð.
  • Öryggisfjarskipti, netöryggi, samræmda neyðarsímsvörun, köfun, leit og björgun og öryggisþjónustu í atvinnuskyni.
  • Eftirlit með innflutningi, framleiðslu, útflutningi, sölu og meðferð skotvopna auk annarra vopna samkvæmt vopnalögum.
  • Framkvæmd löggjafar um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og áfengislöggjafar sem eigi ber undir annað ráðuneyti.

C. Mannréttindi, þar á meðal: mannréttindasáttmála og persónuvernd.


D. Persónuréttindi, þar á meðal:

  • Málefni útlendinga að frátöldum atvinnuréttindum.
  • Ríkisborgararétt og útgáfu vegabréfa, annarra en diplómatískra vegabréfa.
  • Mannanöfn.
  • Sifjarétt, erfðarétt, hjúskaparmál, ættleiðingarmál, persónurétt, lög um horfna menn og yfirfjárráð.

E. Trúfélög og málefni þjóðkirkjunnar, þar á meðal:

  • Skráningu trúfélaga, kristnisjóð, kirkjumálasjóð, sóknargjöld, utanfararstyrk presta og bókasöfn prestakalla.
  • Kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu.
  • Helgidagafrið.

F. Almannakosningar, þar á meðal:

  • Kjör forseta Íslands, kosningar til Alþingis og sveitarstjórna, þjóðaratkvæði og aðrar almannakosningar sem eigi ber undir annað ráðuneyti.
  • Fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og upplýsingaskyldu þeirra.

G. Neytendamál, þar á meðal:

  • Eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu.
  • Lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda.
  • Alferðir.
  • Húsgöngu- og fjarsölusamninga.
  • Vöruöryggi, þ.m.t. vörur unnar úr eðalmálmum.
  • Mælingar, mæligrunna og vigtarmenn.

H. Happdrættismál, þar á meðal: happdrætti, veðmálastarfsemi, hlutaveltur, getraunir og almennar fjársafnanir.

I. Málefni sjóða og stofnana sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.

J. Málefni sveitarfélaga og sýslumanna, þar á meðal:

  • Sveitarstjórnarmál, þ.m.t. stjórnsýslu og verkefni sveitarfélaga, mörk sveitar­félaga, tekjustofna og fjármál þeirra.
  • Sýslumenn.
  • Fasteignaskráningu og fasteignamat, þjóðskrá, lögheimilismál og almanna­skráningu.

K. Samgöngur, þar á meðal:

  • Skipulag samgöngukerfisins, uppbyggingu, rekstur innviða, samgönguþjónustu, samgönguöryggi, samgönguvernd og rannsókn samgönguslysa.
  • Eftirlit með skráningu og búnaði ökutækja, loftfara og skipa.
  • Eftirlit með loftferðum, umferð ökutækja og skipa. Eftirlit með leiðsögu-, vöktunar-, upplýsinga- og eftirlitskerfi í siglingum, flugi og umferð ökutækja.
  • Réttindamál fagaðila í samgöngum. Slysavarnaskóla sjómanna.
  • Hafnir, sjóvarnir, vita og sjómerki og varnir gegn mengun sjávar hvað varðar skip og búnað.
  • Eftirlit með og skráningu bílaleiga og leigubifreiða.
  • Flugvelli, uppbyggingu, rekstur og viðhald. Skipulag loftrýmis.
  • Vegi: lagningu, rekstur og viðhald, þ.m.t. stofnun hlutafélaga um vega­framkvæmdir, sbr. lög nr. 97/2010.

L. Fjarskipti, þar á meðal:

  • Innviði og öryggi rafrænna samskipta, lén og umsýsla netsins.
  • Póstþjónustu, póstflutninga og póstrekstur.
  • Fjarskiptaþjónustu, gagnaflutninga og fjarskiptarekstur.
  • Fjarskiptanet, þó ekki efni sem sent er á fjarskiptanetum.





Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica