Hoppa yfir valmynd
12. júní 2015 Dómsmálaráðuneytið

Embætti dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur laust til umsóknar

Innanríkisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara með fast sæti við Héraðsdóm Reykjavíkur. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 2. september 2015 eða hið fyrsta eftir að nefnd um hæfni dómara hefur lokið starfi sínu. Laun eru samkvæmt ákvörðun kjararáðs.

Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 12. gr. laga um dómstóla nr. 15/1998. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lögmannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýsingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum og 10) upplýsingar um tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlegar og skriflegar upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 620/2010 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf héraðsdómara.

Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mánuði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari.

Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsækjendur gefi upp netfang sem notað verður til að eiga samskipti við umsækjendur. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir.

Umsóknir skulu berast innanríkisráðuneytinu, Sölvhólsgötu 7, 101 Reykjavík og í pósthólfið [email protected], eigi síðar en 30. júní næstkomandi.

Innanríkisráðuneytinu,

10. júní 2015.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum