Hoppa yfir valmynd
26. maí 2015 Innviðaráðuneytið

Ríkisstjórnin ákveður að verja 1,8 milljörðum króna til brýnna úrbóta á vegakerfinu

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum í morgun að verja 1,8 milljörðum króna til brýnna framkvæmda á vegakerfi landsins til viðbótar við þær framkvæmdir sem áður voru fyrirhugaðar.  Tilgangurinn með framkvæmdunum er að bæta umferðaröryggi, bregðast við slæmu ástandi vega og koma til móts við þarfir landsmanna og ferðamanna vegna stóraukinnar umferðar.

Núverandi nyrðri hluti Dettifossvegar - mynd frá Vegagerðinni.
Núverandi nyrðri hluti Dettifossvegar - mynd frá Vegagerðinni.

Brýn þörf á viðhaldsframkvæmdum

Á undanförnum árum hefur viðhald á vegum verið takmarkað vegna aðhalds og niðurskurðar í fjárveitingum til vegamála. Uppsöfnuð viðhaldsþörf er því mikil. Erfitt tíðarfar undanfarna vetur hefur aukið á þörfina og margir fjölfarnir vegir hafa komið illa undan vetri. Tjóna- og slysahætta vegna þessa er mikil og því er nauðsynlegt að ráðast nú þegar í framkvæmdir til að auka umferðaröryggi. Ríkisstjórnin hefur í ljósi þess ákveðið að fé til viðhaldsverkefna verði aukið um 500 milljónir á árinu. Fénu skal varið til viðhalds á umferðarmestu götum á höfuðborgarsvæðinu svo og Hringveginum samkvæmt ástandsmati Vegagerðarinnar sem mun hafa umsjón með verkefninu. 

Öryggi aukið og álagi dreift

Fjárfestingar í innviðum samfélagsins eru almennt mjög arðsamar enda þjóna þær almenningi og styrkja bæði atvinnulíf og búsetu. Góðar og öruggar samgöngur eru þannig grunnforsenda fyrir vexti og framgangi ferðaþjónustunnar. Sú atvinnugrein hefur verið ein af undirstöðum hagvaxtar undanfarin ár en með auknum fjölda ferðamanna hefur álag á vegakerfið aukist mikið. Taka þarf mið að þeirri staðreynd við þróun vegakerfisins og fjárfestingu í öðrum innviðum bæði til að auka öryggi og dreifa betur álagi á vegum landsins.

Liður í því eru framkvæmdir við Dettifossveg, Kjósarskarðsveg, Uxahryggjaveg og Kaldadalsveg, sem gerðar eru mögulegar með því viðbótarframlagi til vegamála sem ríkisstjórnin samþykkti í morgun. Verkefnin eru mikilvægar vegabætur sem lengi hefur staðið til að hrinda í framkvæmd en ítrekað verið frestað. Verkefnin eru öll tilbúin til útboðs með litlum fyrirvara. Alls verður 1,3 milljörðum króna varið til þessara fjögurra verkefna sem Vegagerðin mun hafa umsjón með.

Fjármögnun ofangreindra verkefna er háð samþykki Alþingis en óskað verður eftir fjárheimildum í tillögum til fjáraukalaga 2015. Fjárlaganefnd Alþingis hefur verið kynnt málið í samræmi við 33. gr. laga nr. 88/1997 um fjárreiður ríkisins.

Um Dettifossveg

Framkvæmdir við veginn milli Dettifoss og Ásbyrgis hafa verið ráðgerðar í nokkur ár, en þeim ávallt verið frestað vegna fjárskorts. Vegarkaflinn sem um ræðir liggur um þjóðgarð Jökulsársgljúfra og veitir aðgengi að nokkrum helstu náttúruperlum landsins; Dettifossi, Hólmatungum og Hljóðaklettum. Fullbúinn Dettifossvegur tengir  Kelduhverfi (og þar með Ásbyrgi) í Öxarfirði við Hringveginn á Mývatnsöræfum og þjónar bæði ferðamönnum og aðliggjandi byggðum. Í þessum áfanga er lagt til að lokið verði við áfanga Dettifossvegar milli Ásbyrgis  og Vesturdals (Hljóðakletta) en þar er umferð ferðamanna mikil og vegurinn ekki boðlegur. Áfanginn er mikilvæg viðbót við þann hluta sem kominn er milli Hringvegar og Dettifoss, hann stækkar ferðaþjónustusvæðið, lengir ferðatímabilið og þjónar þannig ferðamönnum og landsmönnum betur. Framkvæmdatími er áætlaður tvö ár. Hægt er að bjóða verkið út fljótlega.

Kafli Dettifossvegar sem fyrirhugað er að endurbyggja.

Um Kjósarskarðsveg

Endurbygging Kjósarskarðsvegar hefur lengi verið talin brýn. Með fjárveitingunni sem ríkisstjórnin leggur til er hægt að flýta henni um eitt ár frá því sem áður var áætlað. Kjósarskarðsvegur tengir Þingvelli við Hvalfjörð og Vesturland. Með uppbyggingu hans er hægt að dreifa betur álagi vegna ferðamanna, auk þess sem nýr Kjósarskarðsvegur mun þjóna betur byggð á svæðinu. Stefnt er að því að endurbyggja á árinu 2015 ríflega helming þess hluta vegarins sem eftir er og leggja á hann bundið slitlag. Hægt er að bjóða út verkið fljótlega.

Kjósarskarðsvegur tengir Þingvelli og Vesturland.

Um Uxahryggjaveg og Kaldadalsveg

Uxahryggjavegur liggur milli Borgarfjarðarbrautar og Kaldadals um Lundarreykjadal. Kaldadalsvegur kallast leiðin milli Þingvalla og Húsafells. Unnið verður að endurgerð Uxahryggjavegar eftir því sem fjármagn leyfir og lagt á hann bundið slitlag. Leggja á bundið slitlags á uppbyggðan kafla á Kaldadalsvegi milli Uxahryggja og Sandkluftavatns. Um er að ræða fjölfarinn kafla sem tengir Þingvelli við Vesturland um Uxahryggi.

Kaldadalsvegur:

Kaldadalsvegur

Uxahryggjavegur:

Uxahryggjavegur






Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum