Hoppa yfir valmynd
24. nóvember 2014 Innviðaráðuneytið

Ísland gerir átta nýja loftferðasamninga

Verulegur árangur náðist í opnun nýrra markaða fyrir íslenska flugrekendur á ráðstefnu Alþjóðaflugmálastofnunarinnar um loftferðasamninga sem haldinn var í Indónesíu í síðustu viku. Markmið hennar er að skapa aðildarríkjum stofnunarinnar vettvang til viðræðna um gerð og framkvæmd tvíhliða loftferðasamninga. Alls sóttu 78 ríki ráðstefnuna og héldu samtals 546 tvíhliða fundi.

Loftferðasamningar undirritaðir. Íslenska sendinefndin með fulltrúum frá Ekvador.

Samninganefnd Íslands gerði átta nýja loftferðasamninga á þessari ráðstefnu. Nýju samningarnir eru við Armeníu, Búrúndí, Eþíópíu, Guyana, Máritíus, Nígeríu, Sri Lanka og Tsjad. Jafnframt var samið um breytingu á samningi við Egyptaland og um inntak og ramma áframhaldandi viðræðna við Ekvador, Nepal og Vestur-Kongó. Auk þess fundaði sendinefnd Íslands um framkvæmd gildandi samninga með fulltrúum Kanada, Rússlands, Tyrklands og Tælands en stefnt er að gerð nýs samnings við síðastnefnda ríkið. Þá funduðu Ísland og Noregur sameiginlega með Marokkó um aðild að loftferðasamningi Marokkó við Evrópusambandið.

Stöðugt vaxandi umsvif íslenskra flugrekenda hafa kallað á aukna áherslu á gerð tvíhliða loftferðasamninga. Misjafnt er um hversu víðtæk réttindi tekst að semja í hverju tilviki en auk gagnkvæmra heimilda til farþega- og farmflugs milli samningsríkja tekst oftast að semja um flug til og frá þriðju ríkjum og viðkomandi samningsríki. Fjöldi samninga sem Ísland hefur gert við önnur ríki nálgast nú 90.

Íslensku sendinefndina skipuðu Kristján Andri Stefánsson sendiherra, sem jafnframt var formaður, Gunnar Örn Indriðason lögfræðingur í innanríkisráðuneytinu og Kristín Helga Markúsdóttir, deildarstjóri lögfræðideildar Samgöngustofu.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum