Hoppa yfir valmynd
23. júlí 2014 Dómsmálaráðuneytið

Skipað í sýslumannsembætti og þeim fækkað úr 24 í 9

Ný lög um umdæmaskipan sýslumanna taka gildi um næstu áramót. Embættin verða 9 í stað 24 áður, sem tryggir öflugri og stærri embætti og skapar ný tækifæri fyrir þessa mikilvægu þjónustu í öllum landshlutum.

Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur í kjölfar niðurstöðu sérstakrar valnefndar tilkynnt um skipan í embætti sýslumanna í nýjum umdæmum. Ný embætti sýslumanna munu taka til starfa um næstu áramót í samræmi við ný lög sem Alþingi samþykkti síðastliðið vor um breytingar á umdæmum sýslumanna og lögreglustjóra og aðskilnað embættanna.

Samkvæmt hinum nýju lögum verður sýslumannsembættum fækkað úr 24 í níu. Lokið verður skipan í embætti í nýjum umdæmum lögreglustjóra á næstu dögum.

Skipan í embætti sýslumanna verður sem hér segir:

  • Sýslumaður á Suðurlandi: Anna Birna Þráinsdóttir.
  • Sýslumaður í Vestmannaeyjum: Lára Huld Guðjónsdóttir.
  • Sýslumaður á Austurlandi: Lárus Bjarnason.
  • Sýslumaður á Norðurlandi eystra: Svavar Pálsson.
  • Sýslumaður á Norðurlandi vestra: Bjarni G. Stefánsson.
  • Sýslumaður á Vestfjörðum: Jónas Guðmundsson.
  • Sýslumaður á Vesturlandi: Ólafur K. Ólafsson.
  • Sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu: Þórólfur Halldórsson.
  • Sýslumaður á Suðurnesjum: Ásdís Ármannsdóttir.

Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra:

„Það er afar ánægjulegt að svo öflugur hópur einstaklinga taki að sér þessi mikilvægu embætti sýslumanna í landinu. Sýslumannsembættin eru gamalgrónar og traustar stjórnsýslu- og þjónustustofnanir sem gegna mikilvægu hlutverki. Með sameiningu og fækkun embætta verða til stærri, öflugri og hagkvæmari rekstrareiningar sem eru betur í stakk búnar til að takast á við ný verkefni og efla þjónustu við almenning í landinu.“

Mikil tækifæri felast í fækkun sýslumannsembætta og stækkun umdæma. Embættin verða í kjölfar breytinganna öflugri og betur í stakk búin til að taka við verkefnum og tækifæri skapast til að flytja verkefni úr miðlægri stjórnsýslu til þeirra. Nú þegar hefur fjöldi verkefna verið færður frá innanríkisráðuneytinu og undirstofnunum þess til sýslumanna og til stendur að færa verkefni í auknari mæli frá öðrum ráðuneytunum og stofnunum og efla þannig enn frekar þjónustu á landsbyggðinni. Það er í samræmi við áherslur ríkisstjórnarinnar um bætta stjórnsýslu og þjónustu ríkisins.

Nýjum sýslumönnum verður nú falið að undirbúa innra skipulag hinna nýju embætta, þjónustu þeirra og starfsemi að öðru leyti en ný umdæmaskipan tekur gildi um næstu áramót. Ráðherra ákveður, að höfðu samráði við viðkomandi sýslumann, sveitarstjórnir, landshlutasamtök sveitarfélaga og fleiri hvar aðalskrifstofur sýslumanna skulu vera og hvar aðrar sýsluskrifstofur verða starfræktar og hvaða þjónustu þar skuli veita. Nú þegar hafa umræðuskjöl verið birt til kynningar og samráðs um umdæmamörk og starfsstöðvar nýrra embætta og hafa ráðuneytinu borist fjölmargar ábendingar og athugasemdir sem farið verður yfir með nýskipuðum sýslumönnum.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum