Hoppa yfir valmynd
3. apríl 2014 Innviðaráðuneytið

Reglugerðardrög um rafræna gjaldtöku af umferð og eftirlit með skipgengum vatnaleiðum til umsagnar

Til umsagnar eru nú hjá innanríkisráðuneytinu tvær reglugerðir sem snúast um innleiðingu á reglum er varða annars vegar rafrænt gjaldtökukerfi við innheimtu á veggjöldum og hins vegar reglugerð um afnám eftirlits með flutningum á vegum og skipgengum vatnaleiðum á landamærum aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins. Umsagnarfrestur er til og með 8. apríl og skulu umsagnir sendar á netfangið [email protected].

Báðar reglugerðirnar hafa einkum í för með sér breytingar sem eru einkum tæknilegs eðlis og snúast um innleiðingar á evróputilskipunum  og eiga það sammerkt að hafa fremur lítil áhrif hérlendis .

Fyrrnefnda reglugerðin er breyting á reglugerð um rekstrarsamhæfi rafræns gjaldtökukerfis innan Evrópska efnhagssvæðisins. Með henni er nú innleidd ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar um skilgreiningu á rafrænu evrópsku vegatollþjónustunni og tæknilegum atriðum hennar.

Síðari reglugerðin snýst um að afnema eftirlit með flutningum á vegum og skipgengum vatnaleiðum sem fram fer á landamærum aðildarríkja Evrópska efnahagssvæðisins. Er markmiðið með breytingunni  að tryggja frjálst flæði umferðar um vegi og vatnaleiðir innan EES.

 

 

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum