Upptökur frá ráðstefnu um klám út frá lagalegu og samfélagslegu sjónarmiði komnar á vefinn
Upptökur frá ráðstefnunni um klám út frá lagalegu og samfélagslegu sjónarmiði sem haldin var í Reykjavík 16. október eru komnar á vef ráðuneytisins. Sérfræðingar ræddu málið út frá hlutverki löggjafans og stjórnvalda, ábyrgð foreldra, sálfræði og fram kom reynslusaga. Að ráðstefnunni stóðu innanríkisráðuneytið, mennta- og menningarmálaráðuneytið og velferðarráðuneytið í samvinnu við lagadeild Háskóla Íslands.
Upptökur frá ráðstefnunni:
- Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra: Setning - UPPTAKA
- Gail Dines, prófessor við Wheelock College í Boston: „Sex(ism), Identity, and Intimacy in a Porn Culture - UPPTAKA
- Jón Þór Ólason, lektor við lagadeild Háskóla Íslands: Hugtakið klám samkvæmt 210. gr. hegningarlaga og beiting ákvæðisins í dómaframkvæmd - UPPTAKA
- Sigríður Hjaltested, aðstoðarsaksóknari hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu: Rannsókn og meðferð brota á banni gegn klámi- UPPTAKA
- Þorbjörg Sveinsdóttir, MS í sálfræði og starfsmaður hjá Barnahúsi: Áhrif kláms á börn og unglinga - UPPTAKA
- Guðjón H. Hauksson, framhaldsskólakennari og faðir: Unglingar á klámbekk – ábyrgð foreldra, skóla og samfélags - UPPTAKA
- Ráðstefnuslit: Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra - UPPTAKA