Hoppa yfir valmynd
11. janúar 2012 Dómsmálaráðuneytið

Ráðstefna um meðferð kynferðisbrota föstudaginn 20. janúar 2012

Innanríkisráðuneytið, Lagadeild Háskóla Íslands og Rannsóknastofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni efna í samvinnu við Evrópuráðið til ráðstefnu um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu þann 20. janúar. Málstofan fer fram í Skriðu, Menntavísindasviði Háskóla Íslands við Stakkahlíð í Reykjavík og stendur frá klukkan 10 til 18.

Á ráðstefnunni verða bæði erlendir og innlendir fyrirlesarar og leitast verður við að leiða saman sjónarmið fræðasamfélagsins, réttarvörslukerfisins og frjálsra félagasamtaka sem fjalla um málaflokkinn.

Ráðstefnan verður í þremur hlutum. 

  • Í fyrsta hluta verður fjallað um kynferðisbrot gegn börnum í tengslum við sáttmála Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun. Íslensk stjórnvöld undirrituðu sáttmálann 4. febrúar 2008 og fullgilding stendur nú fyrir dyrum. Í þessu samhengi verður sérstaklega fjallað um reglur Evrópuráðsins um barnvænt réttarumhverfi en þær voru útbúnar í tengslum við sáttmálann.
  • Í öðrum hluta verður fjallað um meðferð nauðgunarmála í réttarkerfinu út frá þverfaglegu sjónarhorni. Er þessi hluti sjálfstætt framhald af viðamiklu samráði sem innanríkisráðuneytið hefur staðið fyrir um meðferð nauðgunarmála. 
  • Í þriðja hluta ráðstefnunnar verður boðið upp á þrjár málstofur með aðkomu fræðimanna, lögreglu, saksóknara, dómara, lögmanna og frjálsra félagasamtaka. Í þeirri fyrstu verður fjallað um samspil barnaverndarkerfisins og refsivörslukerfisins; í annarri verður rætt um rannsóknir og ákærur í nauðgunarmálum og í þeirri þriðju verður fjallað um trúverðugleika og sönnunarmat.

Ráðstefnan fer fram á ensku og íslensku. Táknmálstúlkun stendur til boða en hana þarf að panta í síðasta lagi 13. janúar.

Ráðstefnan er öllum opin en þátttakendur eru beðnir um að skrá sig til þátttöku og tilgreina áhuga á málstofu með því að senda póst á netfangið [email protected].

DAGSKRÁ

10:00-11:30 Evrópuráðið og kynferðisbrot gegn börnum:

Fundarstjóri: Ragnhildur Hjaltadóttir, ráðuneytisstjóri innanríkisráðuneytis.

Ávarp innanríkisráðherra, Ögmundar Jónassonar.

Eric Ruell, dómari við Tribunal de Grand Instance de Meaux, Frakklandi, og forseti Eftirlitsnefndar sáttmála Evrópuráðsins um vernd barna gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun: The Council of Europe action to tackle sexual violence against children.

Ksenja Turkovic, prófessor í refsirétti við Lagaháskólann í Zagreb, og sérfræðingur Evrópuráðsins: Making child friendly justice a reality: They key elements for the professionals.

Róbert R. Spanó, prófessor og forseti lagadeildar Háskóla Íslands: Tillögur að lagabreytingum vegna innleiðingar Evrópuráðssamnings um varnir gegn kynferðislegri misneytingu og kynferðislegri misnotkun barna.

Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu: The implementation of the CoE instruments with regard to child sexual abuse in Iceland.

Umræður

11:30-12:00: Léttur hádegisverður

12:00-14:30: Meðferð nauðgunarmála í réttarkerfinu

Fundarstjóri: Karl Blöndal, aðstoðarritstjóri Morgunblaðsins.

Liz Kelly, prófessor í kynbundnu ofbeldi við London Metropolitan University: Gaps and Chasms: Understanding why so many rape cases never result in a conviction or justice for victims.

Holly Johnson, prófessor í afbrotafræði við Háskólann í Ottawa: Limits of a criminal justice response to sexual violence.

Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari: Þróun nauðgunarhugtaksins og refsinga fyrir nauðgun - hlutverk ákæruvaldsins.

Heidi Heggdal, dómari við Oslo Tingrett: Sexcrimes, court procedure and punishment - with focus on effort to improve the rights of the victims.

Umræður

14:30-14:45: Kaffihlé

14:45-17:00: Málstofur, sjá nánar hér að neðan.

17:00-18:00: Samantekt og slit: Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra.


MÁLSTOFUR

Málstofa 1:

Samspil barnaverndarkerfisins og refsivörslukerfisins

 Málstofustjóri: Regína Jensdóttir, forstöðumaður barnaréttarskrifstofu Evrópuráðsins

Hrefna Friðriksdóttir, dósent við lagadeild HÍ og formaður stjórnar RÁS

Margrét Júlía Rafnsdóttir, verkefnastjóri hjá Barnaheillum

Ólafur Örn Bragason, sálfræðingur

Ólöf Ásta Farestveit, forstöðumaður Barnahúss

 

 

Málstofa 2:

Rannsókn nauðgunarmála – hvað leiðir til ákæru?

 
Málstofustjóri: Helgi Gunnlaugsson, prófessor við Háskóla Íslands

Jón Þór Ólason, hdl. og lektor við lagadeild HÍ

Björgvin Björgvinsson, yfirmaður kynferðisbrota­deildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu

Eyrún Jónsdóttir, Neyðarmóttöku

Kolbrún Benediktsdóttir, saksóknari

Þorbjörg I. Jónsdóttir, hrl.

Inga Dóra Pétursdóttir, UN WOMEN

 

Málstofa 3: Trúverðugleiki og sönnunarmat


Málstofustjóri: Halla Gunnarsdóttir, aðstoðarmaður innanríkisráðherra

Guðrún Sesselja Arnardóttir hrl.

Jón Friðrik Sigurðsson, yfirsálfræðingur á geðsviði Landspítalans og prófessor

Símon Sigvaldason, héraðsdómari

Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir, starfskona Stígamóta

Svala Ólafsdóttir, dósent við lagadeild HR

 

 

 

 

 

 


Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum