Fréttir dómsmála- og mannréttindaráðuneytis 1999-2010

Breytingar á lögum um gjaldþrotaskipti taka gildi - 29.12.2010

Í dag taka gildi breytingar á lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. nr. 21/1991. Þær fela í sér að kröfur sem skuldari ber ábyrgð á eftir lok gjaldþrotaskipta fyrnast á tveimur árum frá lokum  gjaldþrotaskipta.

Lesa meira
 

Dómsmála- og mannréttindaráðherra ávarpaði ráðstefnu Evrópuráðsins í Róm gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum - 20.12.2010

Ögmundur Jónasson, dómsmála- og mannréttindaráðherra, var meðal þátttakenda á ráðstefnu Evrópuráðsins sem haldin var í tilefni af upphafi átaks Evrópuráðsins gegn kynferðislegu ofbeldi gegn börnum 29.-30. nóvember sl. Ráðstefnan var haldin í Rómarborg á Ítalíu. Lesa meira
 

Skipurit innanríkisráðuneytisins kynnt - 17.12.2010

Skipurit innanríkisráðuneytisins, sem tekur til starfa 1. janúar næstkomandi, var kynnt starfsfólki sem sameinast í hinu nýja ráðuneyti á miðvikudag. Þar gert ráð fyrir sex skrifstofum, þremur fagskrifstofum og þremur stoðskrifstofum.

Lesa meira
 

Vinnuhópi falið að skoða hvort setja skuli á fót millidómstig sem tekur bæði til sakamála og einkamála - 16.12.2010

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur skipað vinnuhóp sem taka á til skoðunar hvort setja skuli á fót hér á landi millidómstig sem taki bæði til sakamála og einkamála, fara yfir kosti þess og galla og meta hvernig slíku millidómstigi væri best fyrir komið.

Lesa meira
 

Flokkað eftir árum




Tungumál


Flýtival



Þetta vefsvæði byggir á Eplica